Hraunperlu Armbandið er unnið úr hrauni og Jade orkusteini, þrætt uppá endingargóða teygju.
Jade er tákn fyrir ró, yfirvegun og kærleika. Steinninn er einnig talinn auka heppni í ástum ♡
Þar sem hraun er að eðlisfari holótt og óreglulegt þá hefur það þann einstaka hæfileika að hægt er að setja nokkra dropa af uppáhald essential olíunni í hraunperlurnar.
Hægt er að fá armband eftir málum, taka þarf fram hversu langt armbandið á að vera í athugasemdum þegar gengið er frá kaupum. Annars er standard stærð u.þ.b 17 cm í slakri stöðu.